Verkefni.

December 28th 2009

Mig vantar að komast í samband við aðila sem getur snyrt til fyrir mig trefjaplast sköft fyrir kajaka.

Regin Grímsson
gsm 772 9296

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

October 19, 2009

Komið sælir rennismiðir.

Við hjá Ástráði - forvarnarfélagi læknanema eigum í smá vandræðum þessa dagana. Þannig er mál með vexti að við förum í nær alla framhaldsskóla á landinum og kennum unglingum um kynheilbrigði. Í því felst meðal annars sýnikennsla á réttri notkun smokka. Við þá sýnikennslu notum við gervilim frá durex sem er á platta, svo hann stendur einn og óstuddur.
Vandræði okkar felast hins vegar í því að við eigum einungis einn slíkann, sem er til ama þegar margir fyrirlestrar koma upp á sama tíma. Durex eru hættir að framleiða fleiri, svo þá er ekki hægt að kaupa lengur. Þess vegna leitum við til ykkar með þá hugmynd að þið, snillingar rennibekkjanna, gætuð rennt nokkur stykki handa okkur. (Ég get sent mynd til nánari útskýringa ef þú vilt).
Á síðasta ári hittum við 7000 ungmenni, og því er ljóst að vinna ykkar myndi ná til ansi margra og jafnvel verða til að auka áhuga ungra á rennismíði ;)
Hvernig líst ykkur á þetta samstarf?

Kær kveðja,
Júlíus Kristjánsson,
formaður Ástráðs.

juk2@hi.is